TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS)
|
|
|
Fellsmörk
Fréttir
árið 2016
|
3. október 2016
Kálfar í Fellsmörk! |
Margbreytilegur er bústofninn á Fellsmörk þessa
dagana. Rollur inni í Króki, hross við
girðingarhlið og svo það nýjasta, kálfar á
vappi við gömlu hlöðuna við Fell. Spurningin er: hver saknar
kálfanna?
Kálfarnir komu undan Eyjafjöllum.
Eigandinn bjargaði þeim áður en þeir lentu í
kistunni.
----------------- Tekið
af Facebook síðunni.
|
|
September
2016
Sigurskúfur sums staðar áberandi í Fellsmörk |
Sigurskúfur heitir hann. Getur dreift nokkuð
vel úr sér. Er þetta plantan sem á eftir að
yfirtaka Fellsmörkina?
Ragnhildur Hrönn Sigurðardóttir sagði á
Facebook að þetta sé meinlaus planta.
Hún sé falleg, blómstrar yndislega og hefur
fallega haustliti. Leiðinleg þegar hún sáir
sér (fræin dreifast eins og asparfræ) en ég
held að hún yfirtaki ekki aðrar plöntur.
Auðvelt sé að reita hana þar sem rótarkerfið
er lítið.
Valdimar Reynisson sagði
Sigurskúfurinn væri frekar þurftarfrek
planta sem vex illa í næringarlitlum
jarðvegi. Hann kunni vel við sig í
skóglendi. Vex yfirleitt ekki mjög hátt uppí
brekkur. þannig að við þurfum ekki að hafa
áhyggjur að hann yfirtaki allt í
fellsmörkinni það er líka nokkuð auðvelt að
halda aftur af honum með slætti.
Sjá má sama svæði á Facebook síðunni
veturinn eftir.
----------------- Tekið
af Facebook síðunni.
|
|
8. ágúst 2016
Seinni plöntudagur 27. ágúst 2016 |
Af Facebook síðunni frá Valdimar:
Jæja gott fólk þá fer seinni plöntudaginn á þessu sumri að renna upp.
Laugardagurinn 27.8 hefur orðið fyrir valinu. við reiknum með að mæta
við gömlu hlöðuna í Felli eins og venjulega kl 13:00.
Allar plöntur sem koma þetta árið eru komnar en því miður
komu ekki allar tegundirnar sem við pöntuðum.
|
|
21. júlí 2016
Heil og sæl: Fréttir af trjáplöntum! |
Um komandi helgi kemur blágreni, lerki (Hrymur) og alaskaösp. Hallur kemur með plönturnar á föstudag eða laugardag og verða þær staðsettar við heimreiðina að bústaðnum á Heiðarbraut 3 (Björgvin og Hulda) vestan Fells. Nú þegar eru þar birki og sitkagreni. Við áttum að fá reynivið og bergfuru líka, en því miður nær gróðrastöðin ekki að afhenda það til okkar þetta árið.
Þeir sem sækja plöntur eru beðnir um að skrá fjölda á blöð í kassanum sem þar er.
-------------
Tekið af Facebook síðunni, efni sem var sett fram af Jóhönnu Ólafsdóttur
|
|
20. júní 2016
Fréttir af plöntudeginum |
Á fyrsta sameiginlega plöntunardegi Landnema í Fellsmörk- 18. júní - var plantað um 1700 birkiplöntum, af 2700 plantna sameignarskammti.
Eingöngu birki og Sitkagreni er komið til afhendingar. Nokkrir bakkar eru staðsettir við heimreiðina að bústaðnum á Heiðarbraut 3 (Björgvin og Hulda) vestan Fells, og eru landnemar hvattir til að taka þær plöntur (og skrá fjölda á blöð í kassanum sem þar er).
Afgangurinn af plöntunum (þ.e. birki og sitkagreni) er í geymslu í gróðrarstöðinni á Tumastöðum í Fljótshlíð hjá Halli Björgvinssyni, þar sem einnig er hægt að sækja þær eftir samkomulagi; sími 864-6606.
Aðrar tegundir s.s. Stafafura, Bergfura, Reynir, Ösp og Blágreni koma síðar, og verður afgreiðsla þeirra tilkynnt þegar þær birtast.
Plöntuskammtur fyrir hvert land:
Birki (Embla), 39 stk
- Blágreni, 12 stk
- Lerki (Hrymur), 30 stk
- Reynir, 21 stk
- Alaskaösp, 44 stk
- Bergfura, 16 stk
- Sitkagreni, 15 stk
Tilkynning verður sett hér inn þegar plönturnar berast til okkar. Minni á að Hallur er með birki og sitkagreni til afhendingar á Tumastöðum samkvæmt samkomulagi.
Plöntunefndin stefnir að því að hafa annan plöntunardag síðsumars, þegar ljóst er hvað gengur af úr úthlutun til lóðahafa.
-------------
Tekið af Facebook síðunni, efni sem var sett fram af Jóhönnu Ólafsdóttur o.fl.
|
|
9. júní 2016
Fyrri gróðursetningardagur sumarsins verður þann 18.júní |
Plöntunefnd blæs til fyrri gróðursetningardags sumarsins þann 18.júní næskomandi.
Mæting við gömlu hlöðuna í Felli kl 13:00.
Það var ákveðið að hafa tvo gróðursetningardaga þetta árið, sá seinni verður auglýstur síðar. Ástæða þess að þetta er gert svona er
að það eru ekki allar plöntur tilbúnar af því sem við erum að fá og svo er þetta stuttur fyrirvari þá hafa fleiri tækifæri til að leggja hönd á plóg.
Á skráninagrblaðinu í kassanum góða verður allur plöntuskamturinn tiltekin þó svo að allar plöntur séu ekki komnar í hús.
Það lítur út fyrir að einungis birkið verði komið í tíma fyrir plöntudaginn. Við tókum eingöngu Emblubirki þetta árið.
Þær tegundir sem eiga eftir að koma eru: bergfura, blágreni, sitkagreni, reynir, alaskaösp og lerki blendingurinn Hrymur.
Sjáumst hress plöntunefndin (Valdi, Jóhanna og Hallur)
|
|
júní 2016
Aðalfundur Félags landnema var haldinn 24.
maí 2016 |
Aðalfundur félagsins var haldinn að
Eilliðavatni.
Ályktun lögð fram á fundinum
Stjórn félagsins var falið að ganga frá
endanlegri ályktun. |
|
Athugið að fréttaannáll ársins 2016
var að mestu færður inn eftirá, í mars 2018.
Aðallega byggt á því sem hafði áður verið
skráð á Facebook síðu Fellsmerkur / Einar
Ragnar - 25. mars 2018. |
|
|
|
|
|
|