|
Myndir frá plöntudegi 22. júní 2013 |

Albrecht mundar gróðursetningarstafinn
|
Nokkrar myndir af plöntudeginum 22. júní og
grillinu á eftir í bústað Sigurlaugar við
Heiðarbraut. Sjá
hér. |
|
19. júní 2013 |
Nánar um plöntudaginn 22. júní |
Gróðursetningardagurinn 2013 verður
laugardaginn 22. júní n.k. Þá verður hin
árlega sameiginlega gróðursetning landnema.
Mæting við Fell innan við gömlu hlöðuna að
austan, þar sem við höfum gróðursett
undanfarin ár, kl. 13.00 – stundvíslega.
Fyrirhugað er að gróðursetja um 2.680
plöntur frá Landgræðsluskógum í sameiginleg
svæði á gróðursetningardaginn og deila út
rúmlega 7.000 plöntum á landnemaspildur
þegar sameiginlegri gróðursetningu lýkur.
Áður en verk hefst verður farið yfir það sem
gera á – því er mikilvægt að þátttakendur
mæti stundvíslega.
Mælst er til þess að plöntuskammtar séu
teknir þennan dag. Plönturnar verða
staðsettar í Keldudal í landi Helgu og
Auðuns, eftir 14. júlí verður öllum frjálst
að taka ósóttar plöntur.
Eftir gróðursetningu er fyrirhugað að grilla
saman við sumarhöll Sigurlaugar, Heiðarbraut
7, þar sem kynt verður upp í kolunum. Hafið
með ykkur mat, drykki og annað sem þarf til
mannfagnaðar og grillveislu af þessu tagi (
kol + grill + pappadiskar + mál + hnífapör).
Gaman væri ef einhver hefur tök á að taka
með hljóðfæri til undirleiks við fjöldasöng
ef sá gállin verður á fólki.
Landnemar eru minntir á að skila tómum
plöntubökkum í gömlu hlöðuna á Felli.
Áhöldum, sem fengin hafa verið að láni hjá
Skógræktarfélagi Reykjavíkur, þarf að skila
strax eftir sameiginlega gróðursetningu þ.
22. júní í gömlu hlöðuna að Felli.
Hittumst heil á Fellsmörk – Skógarkveðjur!
Undirbúningshópurinn:
|
|
13. júní 2013 |
Sameiginleg gróðursetning 22. júní |
Plöntudagur, hin árlega sameiginlega gróðursetning á
Fellsmörk verður laugardaginn 22. júní 2013
Mæting við Fell innarlega að austan, þar sem
við höfum gróðursett undanfarin ár
kl. 13.00 – stundvíslega.
Nánari upplýsingar verða sendar út er nær
dregur. |
|
13. maí 2013 |
Allt orðið fólksbílafært |
Nýjustu fréttir eru þær að slóðar á
vestursvæði hafi líka verið lagfærðir og því
er orðið fólksbílafært um allt svæðið. |
|
12. maí 2013 |
Búið að opna inn á Vestur-Mörk |
Búið er að veita ánni frá á Felli og opna
þar með inn á vesturhluta Fellsmerkur.
Búið er að laga veginn inn í Fellsmörk með
því að fara yfir hann með valtara og ætti
því að vera fær litlum bílum. Þá hafa
nokkrir verstu brautirnar verið lagaðar í
Keldudal. Verið er að skoða hvernig best er
að laga þær Fellsmegin. Þá er núna verið að
vinna í viðhaldi griðinga.
|
|
25. apríl 2013 |
Aðalfundur og plöntudagur |
Áætlun fyrir vorið er að aðalfundur
Fellsmerkur verið þriðjudag 14. maí og að
sameiginlegur plöntudagur verði laugardag
23. júní.
Einnig er verið að undirbúa sameiginlega
ferð félagsmanna í gróðrarstöðina Mörk þar
sem við munum skoða hvernig staðið er að
gerð skógarplantna og er áætluð tímasetning
þeirrar skoðunarferðar um fyrstu helgina í
maí en verður kynnt betur þegar það hefur
fengist staðfest.
|
|
9. apríl 2013 |
Ástand vega á Fellsmörk |

Áin Klifandi er fallega
blá þar sem hún rennur í vegarstæðinu inn á
vestursvæði Fellsmerkur!
Núna þegar vorið er að berjast við veturinn
og ekki alltaf augljóst hvort hafi betur þó
við vitum að vorið verði ofan á og á eftir
fylgi sumar, þá er ekki alveg sama vissa um
hvernig baráttan við vatnsföllin fer.
Staðan sem var uppi á austur svæði
Fellsmerkur lítur nefnilega út fyrir að vera
komin upp á vestursvæðinu. Eins og
sést á myndinni að ofan þá liggur Kilfandi í
vegarstæðinu fyrir neðan Hólsbraut og situr
þar sem fastast.
Vatnslítil áin er líklega ófær fyrir
jepplinga og þaðan af minni bíla og ef eða
þegar vatnavextir verða þarf ekki að spyrja
að leiklslokum. Gróður sem sem t.d.
sést á myndinni mun sópast í burt og ekki
mun verða mögulegt að aka þar inn á neinum
venjulegum ökutækjum.
|
|
7. mars 2013 |
Vorið sem þjófstartaði |

Fyrstu helgina í mars 2013 var vorið í startholunum í Fellsmörk.
Eins og sjá má á myndinni að ofan voru tré
að byrja að laufgast enda voru mánuðurnir
janúar og febrúar með þeim al hlýjustu sem
hafa mælst. Nokkrum dögum seinna var
komið frost og svo kom hríðarbylur. Er
óskandi að trén hafi ekki hlotið mikinn
skaða af þessum sveiflum í veðrinu.
|