|
3.október 2007
Algjörlega ófært á austursvæðinu
Sigurjón í Pétursey hafði samband í dag.
Hann hafði byrjað lagfæringar á veginum á
vestursvæðinu. S.l. nótt (aðfararnótt
þriðjud. 2. okt.) gerði mjög mikið
vatnsveður þannig að allt sem búið var að
gera eyðilagðist. Varnargarðurinn sem
Vegagerðin gerði fyrir ca. 5 - 7 árum fór í
sundur og mun Einbúinn vera umflotinn!
Vegurinn að vestursvæðinu er þannig
með öllu ófær. Sigurjón setti
grjóthnullunga yfir veginn þar sem hann fer
yfir varnargarðinn (nálægt ruslagámnum) til
þess að hindra að einhver lendi í
hremmingum.
Af austursvæðinu er það hins vegar að frétta
að þar eru vegir vel færir. Engar
vegaskemmdir þar. Reyndar hafði Keldudalsáin
flætt lítillega yfir veginn - en það var
lagað.
|
|
1. október 2007
GPS mælingar ganga vel
Að sögn Elínar hjá Landnotum gengu
mælingarnar mjög vel í
frábæru haustveðri 25. september
síðastliðinn. Hún hafði mælt sér mót við 2
brautarstjóra sem gátu mætt þann dag, þá
Kristinn Helgason fyrir Heiðarbraut og
Hjalta Elíasson fyrir Hlíðarbraut, Keldudal
og Krók). Mældar voru lóðir við
Heiðarbraut, Hlíðarbraut, í Keldudal og
lóðin Krókur 11. Mælt var í tæpar 9 klst
samfellt, fram í myrkur
Ef hægt verður að ná brautarstjórum við
Hólsbraut og Gilbraut austur sama dag verður
hægt að klára það sem eftir er á einum degi…
ef veður verður jafn hagstætt og þennen dag.
Það mun ekki verða unnið úr mælingunum
fyrr en stafræni kortagrunnurinn er kominn
en hér að neðan er skjámynd sem sýnir stöðu
punktanna.
Hægt að smella á myndina til að fá hana
stóra.
|
26. september 2007
Færð á vegum á Fellsmörk
Við GPS mælingarnar í vikunni var hægt að
meta færð á vegarslóðum á Fellsmörkinni.
Slóðarnir eru ekki með öllu ófærir en svo
höfð séu eftir orð Kristins Helgasonar um
færðina á vestur svæðinu þá:
"Mér
hugkvæmdist ekki að ljósmynda veginn
(nema það sem mér þótti skondið
Nefnilega Ræsi -í sumar (eða ölluheldur
haust) fríi - allnokkru
ofanvið vinnustaðinn sinn? Öllu reyndist
þó óhætt. Engar sandbleytur eða mjög
grófar torfærur (amk ekki í þessum
dýrðarþurki) - en víst er um það, að
venjulegum lágum fólksbíl þarf að aka af
mikilli gætni - ef slíkur ætti að ná á
leiðarenda. (Ég myndaði ekki grófu
kaflana, sem eru ofar).
Hvern
veginn unnt verður að "telja" Klifanda
á, að láta veginn okkar í friði, er mér
óljóst (nema þá með verulega
kostnaðarsömum "Pulsu" eða "Grjótgarða"
framkvæmdum) ? "
Myndir Kristins hér að neðan tala sínu máli.
Eitthvað sést eftir af slóðanum en annars
staðar er hann farinn veg allrar veraldar.
Og eins og sjá má þá er þarna ræsi eitthvað
að dóla sér í tómu aðgerðaleysi!
Það flæðir yfir veginn á einhverjum
köflum.
Ræsið sem skolast hefur burt frá sínum
vinnustað.
Ýtan sem er hið mesta þarfaþing í
framkvæmdum á Fellsmörk
Af austursvæðinu er það að frétta að
Sigurjón rak þar ýtu eða skóflutönn niður
fyrr í vikunni og eru vegir þar sagðir með
skárra móti og ættu að vera færir öllum
venjulegum bílum ef farið er með gát.
26. september 2007
Fyrsti dagur í GPS
mælingu gekk vel!
GPS mæling gærdagsins gekk vel. Hjalti
Elíasson og Kristinn Helgason fóru um svæðið
með Elínu frá Landnotum. Svo haft sé
eftir hjalta þá:
"Búið að mæla
Hlíðarbraut(alla),Keldudal, Sigurgeir lækni,
og gert klárt til mælingar í Krók og
Dalbraut.
Einnig kláraði Elín að
mæla Heiðarbraut. Allt gekk vel.
Fallegt veður og hiti."
Þeir Kristinn og Hjalti fóru um svæðið með
Elínu og gengu mælingarnar mjög vel. Var
augljóst að hér var verið að vanda til verks
sem lengi hefur verið beðið eftir.
|
Elín við
mælingar á Fellsmörk 25. september 2007
Kvöldið fyrir
mælingarnar var bjart veður og tók Kristinn
þessa skemmtilegu mynd hér af tunglinu yfir
Pétursey.
|
26. september 2007
Nýjar myndir komnar á vefinn |
Nokkrar myndir frá síðasta
sumri hafa verið settar á vefinn. Þessar
myndir eru frá umsjónarmanni vefsins, Einari
Ragnari. Aðrir landnemar sem lúra á
skemmtilegum myndum mega gjarnan koma þeim á
framfæri og senda á netfangið
eragnar@skyrr.is.
Sjá
myndir á
myndasíðu
Ath að þetta eru margar myndir og getur
tekið smá tíma að fá þær allar til að
birast
|
25. september 2007
Enn ófært eða illfært í Fellsmörk |
Vegurinn að vestursvæðinu
í Fellsmörk er enn með öllu ófær.
Búist er við að viðgerðir hefjist næsta
fimmtudag (27. september). Vegurinn á
austursvæðinu þarfnast einnig lagfæringa en
telst ekki ófær. Til greina kemur þar að
taka niður girðinguna á aurunum og ýta upp
varanlegri vegslóð núna í haust.
|
|
25. september 2007
GPS mælingar að hefjast |
Veðurspá var hagstæð fyrir
daginn í dag á Fellsmörk og var fyrirhugað
að hefja GPS mælingar á landnemaspildum. Er
óskandi að mælingar gangi vel fyrir sig þó
ástand veganna sé dapurt um þessar mundir.
Nánari upplýsingar um framgang mælinganna
verða settar á vefinn fljótlega.
|
|
21. september 2007
Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar |
Fyrsti stjórnarfundur
vetrarins var haldinn í gær, 20. september.
Fundargerð er aðgengileg á vefnum.
Fundargerð
stjórnarfundar 20. september 2007
|
|
13. september 2007
Vatnavextir - ófært á vesturhluta
Fellsmerkur |
Vegurinn á vestursvæðinu
er ófær vegna vatnavaxta. Holtsáin hefur
grafið frá brúarstöplum - að hluta til - er
þó bílfært með varkárni. Jeppafært er á
austursvæðinu.
Sigurjón í Pétursey vinnur
að viðgerð (13. september 2007).
|
|
13. ágúst 2007
Sauðfé á Fellsmörk ? |
Í
sumar hefur verið hópur af
kindum hímandi utan girðingar við brúna yfir
Klifanda og hefur sést til nokkurra kinda
sem voru komnar yfir girðinguna.
Girðingin virðist ekki vera fullkomlega
fjárheld og eflaust hefur eitthvað af fénu
leitað þar upp í Fellsmörkina.
Þá eru fregnir af fé sem var
komið ofarlega í Heiðarbraut og hefur því
verið stuggað burt upp til heiða.
Einnig hafa landnemar verið í smalamennsku í
Keldudalsheiðinni og í brekkubrún fyrir ofan
Krók.
Unnið er að lagfæringum á girðingum en landnemar
sem hafa orðið varir við fé eða vita hvaðan
féð er upprunnið mætti gjarnan láta fulltrúa
sinnar brautar í stjórn vita. |
|
6. júlí 2007
Sameiginleg gróðursetning í blíðskaparveðri |
Veðrið lék við
landnema á Fellsmörk þegar sameiginlegur
gróðursetningardagur var á Jónsmessunni, 24.
júní síðastliðinn. Gróðursett var utan
í Fellinu eins og undanfarin ár og tókst að
vanda vel til. Að loknu vel heppnuðu
dagsverki var efnt til sameiginlegrar
grillveislu í Dönskutó, bústað Hjalta og
Júlíu í Króki.
Hannes
Siggason formaður Fellsmerkur myndaði daginn
og eru myndirnar aðgengilegar
hér.
|
|
14. júní 2007
Ný stjórn kosin á aðalfundi Fellsmerkur 31.
maí 2007 |
Aðalfundur
Fellsmerkur var haldinn 31. maí
síðastliðinn. Einar Ragnar sem verið
hefur formaður síðustu fimm ár gaf ekki kost
á sér áfram en í hans stað var kjörinn
Hannes Siggason. Önnur breyting var að
Sveinn Björnsson gaf ekki kost á sér sem
fulltrúi Heiðarbrautar og tók Sigrún María
Kristinsdóttir sæti hans. Stjórnin er
þá skipuð eftirtöldum aðilum:
Hannes
Siggason, formaður
Auðunn Oddsson, Keldudal
Einar Kristjánsson, Gilbraut
Einar Ragnar Sigurðsson, Hlíðarbraut
Hjalti Elíasson, Króki
Kjartan J. Kárason, Hólsbraut
Sigrún María Kristinsdóttir, Heiðarbraut
Meiri
upplýsingar um aðalfundinn og m.a. ályktun
hans eru væntanlegar. |
|
25. maí 2007
Sameiginleg gróðursetning á dagskrá 23. júní
2007 |
Árlegur
sameiginlegur gróðursetningardagur á
Fellsmörk hefur verið ákveðinn 23. júní
n.k. Bréf er á leiðinni til félagsmanna,
sjá að neðan.
Bréf um sameignlegan gróðursetningardag
(PDF)
|
|
16. maí 2007
Aðalfundur 31. maí 2007 |
Aðalfundur
Fellsmerkur verður haldinn fimmtudaginn 31.
maí 2007 kl. 20:00.
Sjá nánar í
fundarboði (PDF)
|
|
2. apríl 2007
Ástand vega í Fellsmörk yfir páska |
Gera má ráð
fyrir að landnemar á Fellsmörk verði á
ferðinni yfir páskana. Af slóðum er
það að frétta að allt á að vera sæmilega
fært á vestursvæðinu, þ.e. fyrir vestan
Fellið.
Vegir á
austursvæðinu voru lagaðir á laugardag 31.
mars en fóru aftur daginn eftir sbr. myndir
hér að neðan. Sigurjón í Pétursey mun
hins vegar þegar eitthvað sjatnar, fara
inneftir og laga vegina til bráðabirgða
fyrir páskaumferðina. Það má því gera
ráð fyrir að fært verði yfir páskana á meðan
ekki vex aftur í ánum. |
|
1. apríl 2007
Vatnavextir eina ferðina enn! |
Snjó hefur nú
tekið að mestu upp með einhverjum
vatnavöxtum eins og við var að búast.
Sveinn Björnsson var á ferð í Fellsmörk og
tók myndir af vatnavöxtum fyrir neðan
Keldudal í dag 1. apríl. Ljóst er að vegir hafa
skemmst og þarf að huga að viðgerðum eins og
mögulegt er fyrir páska.
Sjá
stærri myndir á myndasíðu
|
|
18. mars 2007
Allt á kafi í snjó |
Laugardaginn 17.
mars kyngdi niður snjó í Fellsmörk og urðu
allir slóðar ófærir. Fært var á vel
búnum jeppum veginn inn að Álftagróf.
Landnemar sem keyrt höfðu áfram inn slóðana
fyrr um helgina lentu í
vandræðum með að komast til baka á
sunnudeginum þegar myndin að ofan var tekin.
Sjá
fleiri myndir á myndasíðu
Panorama
mynd í fullri stærð
|
|
7. mars 2007
Tölur um gróðursetningu síðasta sumars
komnar á vefinn |
Hannes Siggason
hefur tekið saman upplýsingar um hvar hverju
var plantað síðastliðið sumar eins og
endranær. Sameiginleg gróðursetning
var eins og á síðasta ári í austurhlíðum
Fellsins og var þar plantað alls 2.680
plöntum. Af einstökum brautum
var mest plantað í Króki, alls 2.295
plöntur. Á svæðinu var alls plantað
rúmlega 10 þúsund plöntum í
Landgræðsluskógaverkefninu.
Eins og
undanfarin ár var mest plantað af birki eða
tæp 80% af fjölda plantna.
Sjá
nánar á Landgræðsluskógasíðu Fellsmerkur
|
|
8. febrúar 2007
Fært öllum bílum í Fellsmörk! |
Hjalti og Júlía
voru fyrir austan um síðustu helgi (3. og 4.
febrúar) og var fært öllum bílum inneftir í
Krók. Lítið var í ánum svo þær voru víðs
fjarri.
Eftirlegu rollur
fundust inni á heiði.
Eigandinn í
Álftagróf kominn á nýjan traktor og var að
fara um svæðið.
Fleiri
myndir eru á myndasíðu.
|
|
Febrúar 2007
Helgimynd birtist í moldarflagi |
Moldarflög geta
tekið á sig undarlegar myndir. Þessi
mynd sem var tekin í Gilbraut fyrir nokkrum
árum komst núna loksins á tölvutækt form.
En eitt kvöld þegar Áslaug B. Ólafsdóttir og
Halldór Vilhelmsson voru í Fellsmörk þá
blasti þessi undarlega myndun við þeim
andspænis Gilbrautinni. Engu líkara en
er að þarna birtist einhvers konar mannsmynd
eða helgimynd í moldarflaginu!
Daginn eftir var þar ekkert óvenjulegt að
sjá. |
|
26. janúar 2007
Landgræðsluskógasamningur undirritaður |
Miðvikudaginn
24. janúar sl. skrifuðu fulltrúar
Skógræktarfélags Reykjavíkur og
Skógræktarfélags Íslands undir samning um
landgræðsluskóg vegna Fellsmerkur.
Samningurinn mun tryggja árlega úthlutun á
trjáplöntun næstu árin eða á meðan ríkið
stendur fyrir landgræðsluskógaverkefninu.
Samningurinn er í þinglýsingu. |
|
24. janúar 2007
Hafursá hamlar för í Fellsmörk |
Albrecht og Birgit voru á ferð í Fellsmörk
5. janúar og breiddi Hafursáin þá úr sér þar
sem vegstæðið inn í Hlíðarbraut og Krók er
vant að vera. |
|
3. janúar 2007
Landgræðsluskógaverkefnið |
Verið er að
undirbúa árlega umsókn Fellsmerkur í
Landgræðsluskógaverkefnið. Gert er ráð
fyrir hefðbundnum plöntudegi seinni hluta
júnímánaðar. Plöntunefnd undir forystu
Hannesar Siggasonar sér um málið. |
|