TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS)
|
|
|
Fellsmörk
Fréttir
árið 2003
|
4. október 2003
Fornminjar Fellsmörk |
Tryggvi
Þórðarson landnemi í Krók uppgötvaði fornar
rústir vorið 2003 sem má sjá á meðfylgjandi
myndum en Tryggvi hefur fengið staðfest frá
fornminjafræðingum, m.a. frá Fornminjavernd
ríkisins, að sé mjög gamlar, hugsanlega frá
fyrstu byggð á landinu.
Þarna eru
a.m.k. 2 langskálar (annar með úthýsi en
hinn ekki) og tvö nokkurn veginn hringlaga
hús auk garða í nánd og verið gæti að þarna
leyndust fleiri byggingar. Væntanlega verður
þetta kannað betur næsta
|
|
22. september 2003
Vatnavextir í september 2003 |
Um miðjan september flæddi Hafursáin út yfir bakka sína og flæddi yfir veginn sem liggur inn í Krók. Vegarstæðið varð eiginlega úti í miðri ánni sem og þá kolófært jafnvel fyrir stærri jeppa.
Áin hopaði á næstu dögum en hafði þá sópað öllum vegunum í burtu.
Skógræktarfélag Reykjavíkur gekk í málið og í lok september var búið að lagfæra veginn. Hann var hækkaður aðeins upp og heldur því vonandi þó það gerir einhverjar frekari haustrigningar.
Myndir af uppákomunni eru
hér
|
|
7. mars 2003
Vegaskemmdir í vetur |
Í miklum haustrigningum haustið 2002 urðu umtalsverðar vegaskemmdir. Á austursvæðinu rann læna úr Hafursánni yfir veginn sem liggur inn með Hlíðarbrautinni og áfram inn í Krók, þannig að hann var ekki fólksbílafær um dálítinn tíma. Gert var við þann hluta vegarins þannig að hægt var að komast hann á venjulegum fólksbíl. Ekki er vitað til þess að varnargarðurinn á austursvæðinu sem er í umsjón Landgræðslunnar hafi skemmst.
Að vestan hafa orðið mun alvarlegri skemmdir og eru
meðfylgjandi myndir
þaðan teknar í janúar 2003. Þar flæðir lækur yfir veg þannig að hann er ekki fólksbílafær og einnig hefur kvarnast verulega úr varnargarðinum. Þarf að leggja áherslu á að laga þann varnargarð því eins og hann er núna þá er hann slysagildra og breiðir bílar komast ekki um hann. Þessi varnargarður er í eigu og umsjón Vegagerðarinnar. |
|
|
|
|