21. júní
2020
Aðalfundur haldinn 15. júní 2020 |
Aðalfundur Félags landnema á Fellsmörk var
haldinn að Elliðavatni 15. júní
síðastliðinn. Helstu fréttir eru þær að
ákveðið var að félagið myndi styrkja
landnema til að kaupa eldklöppur með um
helmings niðurgreiðslu á eina eldklöppu
fyrir hvern félagsmann.
Stjórnin var endurkjörin en að auki bættist
Albrecht Ehmann í stjórnina.
Hreinn Óskarsson sviðsstjóri hjá
Skógræktinni flutti erindi um gróðurelda.
|
|
1. júní
2020
Aðalfundur 2020 |
Boðað hefur verið til aðalfundar í Félagi
landnema á Fellsmörk og verður fundurinn
haldinn 15. júní, sbr. útsent fundarboð.
|
|
28. apríl
2020
Ennþá illfært yfir Keldudalslækinn |
Gert var við skemmdirnar við Keldudalslækinn
til bráðabirgða fljótlega eftir að hann
skemmdist en það mátti heita illfært þar
yfir fram á vorið.
Tryggvi Þórðarson var á ferðinni í lok
apríl, tók myndina að ofan og hafði þetta að
segja á Facebook síðu Fellsmerkur:
"Við vorum í Fellsmörkinni um síðustu helgi.
Það var illfært inn að Króki vegna þess að
Keldudalslækurinn hafði rofið úr veginum við
ræsin. Ég lét Helga hjá Skógræktarfélaginu
vita og hefur hann beðið Sigurjón í Pétursey
um að kíkja á þetta. Vonandi tekst að laga
þetta en það er ekki svo einfalt nema notað
verði grófara efni sem lækurinn ræður ekki
við að taka. Myndirnar voru teknar á
Sunnudaginn."
|
5.
febrúar 2020
Vatnavextir og vegaskemmdir |
Það voru vatnavextir í byrjun febrúar og tók
meðal annars ræsið á Keldudalsánni. Samkvæmt
upplýsingum frá Hjalta Elíassyni sem tók
meðfylgkandi mynd, héldu varnargarðar
Hafursánni í skefjum. Ekki bárust fréttir af
ástandi á vestur hluta Fellsmerkur.
|