  
Myndir frá Fellsmörk 24. apríl 2010
Eldgosið í
Eyjafjallajökli hófst 14. apríl og
10 dögum seinna var komið töluvert
öskufall í Fellsmörk. Má segja
að algeng þykkt á öskunni hafi verið
um hálfur sentimetri. Eins og
öskufallið var orðið þarna þá gerði
það gróðrinum líklega ekkert ógagn
en talsverður óþrifnaður var hins
vegar af öskunni.

Öskuslikjan er yfir öllu í skóginum

Öskulagið sem víða var orðið um hálfur sentimetri má vel sjá á hjólbörunum

Efst í Hlíðarbrautinni. Öskulagið er mjög áberandi í moldarflaginu sem er fremst á myndinni. Minna ber á öskunni í gróðrinum.

Séð yfir innri hluta Hlíðarbrautar og inn í Krók. Grátt öskulagið liggur yfir öllu.

Borð og bekki þarf að hreinsa.

Eldfjallið sem spjó eldi og eimyrju, séð undir Eyjafjöllunum.
Vegir voru enn í algjöru lamasessi á
austur hluta Fellsmerkur.
Torfært var að komast lengra en yfir
Keldudalslækinn og var bíllinn
skilinn þar eftir. 
Stórgrýti hamlar för á austursvæðinu. Ösku má sjá á milli steinanna

Fyrir neðan Hlíðarbraut. Töluverður bakki er komin þar sem Hafursá og Lambá hafa í sameiningu rofið land

Leiðin upp Keldudalinn er torfæri.
Bent er þó á að vestari leiðin upp í
Keldudal er mun auðveldari
uppkeyrslu en þessi.

Séð yfir Einbúa ofan frá Heiðarbraut. Sæmilega
jeppafært var að þessu sinni inn á
allt vestur svæði Fellsmerkur.
______________________
Ljósm. Einar Ragnar Sigurðsson
|