Gönguferð á Búrfell í nóvember 2010
Búrfell blasir við frá Fellsmörk
og við fyrstu sýn virðist það vera
ókleift. Það er hins vegar
þannig með mörg fjöll sem bera þetta
algengna fjallsnafn að það er bratt
öðrum megin en frekar afíðandi hinum
megin. Þannig er með Búrfell
við Fellsmörk. Það snýr bröttu
hliðinni að Fellsmörk en er frekar
aflíðandi til suðurs. Fjallið
er því kjörið til uppgöngu. Í
nóvember 2010 örkuðu bræður tveir,
Gunnar og Einar Ragnar Sigurðssynir
á fjallið. Leiðin sem var
farin sést á þessu korti.
Leiðin upp er að vísu örlítið
brött á köflum en þó ber þess að
geta að til að sjá yfir Fellsmörkina
þarf ekki að fara upp á hæsta tind
Búrfellsins. Það er raunar
þannig að frá honum sést ekki yfir
austurhluta Fellsmerkur. Besta
útsýnin til Fellsmerkur er frá
norðurbrún fjallsins og til að
komast þangað þarf ekki að fara mjög
brattar brekkur.
Gengið er upp gilið hægra megin á
myndinni að ofan.
Á norðurbrún fjallsins opnast
afar góð útsýn til Fellsmerkur eins
og sést á meðfylgjandi myndum.
Ámyndinni hér að ofan sést yfir
Krók og innsta hluta Hlíðarbrautar.
Á myndinni hér fyrir ofan sér til
Hlíðarbrautar og einnig glyttir í
Keldudalinn.
Hér sér síðan til Holts og
Álftagrófar.
Einnig sér til Eyjafjallajökuls
sem til guðs blessunar er hættur að
gjósa!
Myndin að ofan er samsett mynd
sem sýnir austur hluta Fellsmerkur.
Hægt er að
smella á myndina til að fá hana
stærri.
______________________
Ljósm. Einar Ragnar Sigurðsson
|