Séð yfir Krók þegar komið er upp á brúnir beint fyrir ofan
Hlíðarbraut í Fellsmörk
Séð til Búrfells yfir Hlíðarbraut
Séð yfir Keldudal og Álftagróf til Péturseyjar. Glyttir í
Fellsfjall til hægri.
|
Panorama mynd sem sýnir Krók og Hlíðarbtraut.
Hægt er að smella á myndina til að fá hana stóra. |
Gengið var meðfram girðingum sem liggja inn á
heiðarnar. Ástand þeirra á þessum slóðum var að mestu leyti
ágætt en einn og einn staur var þó á hliðinni. Þar sem engin
keðja er sterkari en hennar veikasti hlekkur þá er ljóst að það þarf
að laga girðingarnar áður en fé fer á fjall.
|
Panorama mynd sem sýnir útsýnið til baka
Hægt er að smella á myndina til að fá hana stóra. |
Snjóalaust var orðið að mestu í byggð en í um
400 metra hæð voru skaflar í fjallshlíðum.
Einn hóll er merktur á kort og kallast
Valaþúfa. Framundan á næstu mynd er einhver hóll og uppi á
honum er þúfa. Hvort það er þessi Valaþúfa er ekki alveg
ljóst, einkum þar sem Valaþúfa er merkt annars staðar á kort.
En það hefur komið fyrir að kort hafi verið röng og/eða ónákvæm og
kannski er það þannig hér.
Hóll sem gæti verið Valaþúfa í sjónmáli
Hvort sem þetta er Valaþúfa eða ekki þá er
þetta kjörinn útsýnisstaður og upplagður áivangur.
Komið upp á hólinn þar sem þúfan er
Séð inn til jökiuls ofan af þúfunni sem gæti verið Valaþúfa.
|
Panorama mynd sem sýnir útsýnið inn að jöklunum.
Jökullinn vinstra megin er Eyjafjallajökull en jökullinn nær
er Mýrdalsjökull.
Hægt er að smella á myndina til að fá hana stóra. |
Áfram var haldið göngunni og líklega í 700
metra hæð var orðinn töluverður snjór. Innarlega í gilinu þar
sem Lambá hefur upptök sín er líklega nokkuð greið uppgönguleið úr
gilinu eða niðurgönguleið eins og hefði verið hægt að nýta sér í
þessum göngutúr. Það er hins vegar ekki alveg vitað hvort hægt
sé að komast svona innarlega í gilinu. Enda var hér hugmyndin
að fara vestur að Holtsgili á bakaleiðinni.
Innarlega á vesturbarmi gilsins þar sem Lambá hefur upptök sín í
Mýrdalsjökli
Gengið alla leið inn að jökli.
Jaðar Mýrdalsjökuls
Séð niður til láglendis af efstu brúnum í útjaðri Mýrdalsjökuls.
Á bakaleiðinni var gengið vestar og farið
vestur að Holtsgili. Ummerki jökla fyrri alda eða árþúsunda
eru þarna ef að er gáð eins og sést á næstu mynd. Þar eru
greinilegar jökulrispur með stefnu til sjávar og jökullinn hefur
skilið eftir sig eitt myndarlegt grettistak.
Jökulrispur og Grettistak í námunda við Holtsgil
Holtsgil
Holtsgil hamlar víða för og að minnsta kosti
er örðugt að komast yfir það. Vegna gilja út um allt á
bakaleið var endað á svipuðum slóðum og lagt var af stað með
upphaflega.
Að nálgast Fellsmörk. Búrfell í sjónmáli.
Gangan tók líklega um 8 klst alls.
Fínn göngutúr upp að Mýrdalsjökli.
______________________
Ljósm. Einar Ragnar Sigurðsson
|