TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS) |
|
|
Stjórnarfundur í Félagi
landnema í Fellsmörk haldinn 14.03.2006
(Þriðji fundur stjórnar Fellsmerkur veturinn
2005-2006, haldinn hjá Hjalta Elíassyni)
Mættir: Einar Kristjánsson, Einar Ragnar
Sigurðsson, Hjalti Elíasson, Kjartan Kárason og Magnús Jóhannesson
Fjarverandi stjórnarmenn: Auðunn Oddsson
og Sveinn Björnsson
Helstu atriði úr fundargerð:
-
Staða varðandi
samning um yfirtöku rekstrar Fellsmerkur: Einar Ragnar búinn
að hitta Helga Gíslason og annar fundur áætlaður næsta fimmtudag.
Ágreiningsefnin hafa verið skilgreind og eru einungis fimm.
Bjartsýni um að það takist að ljúka samningnum í þessari atrennu.
Frést hefur af því að Landbúnaðarráðuneytið hafi óskað eftir að
samningur ráðuneytisins við Skógræktarfélag Íslands um Fellsmörk verði
tekinn upp í kjölfar sölu Álftagrófar.
-
GPS mælingar á
svæðinu: Hlíðarbraut var mæld upp sumarið 2004.
Einar Ragnar sem fulltrúi brautarinnar ætlar að fá punktana frá
Einari Gunnarssyni hjá Skógræktarfélagi Íslands sem sá um
mælingarnar. Vonast er til að frekari mælingar fari fram á sem
flestum brautum í Fellsmörk sumarið 2006.
-
Plöntudagur
2006: Hannes Siggason sendi inn pöntun til
Landgræðsluskóga fyrir hönd plöntudagsnefndar. Ákveðin óvissa
ríkir þar sem samningur er ekki til staðar um Fellsmörkina.
-
Viðbragðsáætlun
í Fellsmörk vegna hugsanlegs Kötlugoss: Um næstu helgi er
almannavarnaáætlun á dagskrá til að æfa viðbrögð við Kötlugosi.
Ekkert samráð hefur verið haft við landnema vegna þessa svo vitað
sé. Hjalti ætlar að vera í Fellsmörk umrædda helgi og kemur þá
í ljós hvort viðbrögð nái til hans. Magnús ætlar svo að vera í
sambandi við Svein sveitarstjóra í Vík til að fá upplýsingar um hvað
fólk í Fellsmörk eigi að gera ef til eldgoss kemur. Til greina
kemur að hafa umfjöllun um slík viðbrögð á aðalfundi Félags landnema
núna í vor.
Fundargerðin skráð af ERS þar sem SB komst
ekki á fundinn. |
|
|
|
|