TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS) |
|
|
Stjórnarfundur í Félagi
landnema í Fellsmörk haldinn 28.12.2005
(Annar fundur stjórnar Fellsmerkur veturinn
2005-2006, haldinn hjá Einari Ragnari)
Mættir: Einar Kristjánsson, Einar Ragnar
Sigurðsson, Hjalti Elíasson, Kjartan Kárason, Magnús Jóhannesson og
Sveinn Björnsson
Fjarverandi stjórnarmenn: Auðunn Oddsson
Helstu atriði úr fundargerð:
-
Nýr
eigandi Álftagrófar: Nýr eigandi jarðarinnar
Álftagrófar er genginn í Félag landnema á Fellsmörk. Ákveðið var að
bjóða honum á fund stjórnar félagsins til að ræða sameiginleg mál.
-
Drög að samkomulagi við Skógræktarfélag Reykjavíkur:
Farið var yfir stöðuna á samningaviðræðum við Skógræktarfélag
Reykjavíkur og síðustu breytingatillögur. Einnig var
farið yfir bréfaskriftir milli Helga og Magnúsar um að fara að taka
upp þráðinn aftur með samninginn og mælingar á spildum. Ákveðið var
að Einar Ragnar tali við Helga um að fara að ljúka samningnum.
Einnig var samþykkt að reyna að flýta uppmælingum á spildunum.
-
Næsti fundur: Ákveðið var að hafa fund
fljótlega aftur og bjóða Sigrúnu, sem er í stjórn SR og jafnframt
landnemi á Fellsmörk, á fundinn.
|
|
|
|
|