TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS) |
|
|
Stjórnarfundur í Félagi
landnema í Fellsmörk haldinn 23.8.2005
(Níundi fundur stjórnar Fellsmerkur veturinn
2004/2005, haldinn hjá Kjartani)
Mættir:
Einar Kristjánsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Hjalti
Elíasson, Kjartan Kárason, Magnús Jóhannesson og Sveinn Björnsson.
Fjarverandi stjórnarmenn: Auðunn Oddsson
Helstu atriði úr fundargerð:
-
Undirbúningur fyrir aðalfund:
Ákveðið var að biðja Hannes Siggason að
sjá um fundarstjórn á aðalfundinum og Björgvin Salómonsson að rita
fundargerð. Einar Ragnar mun tala við þá.
-
Drög 6
að samkomulagi við SR:
Farið var yfir athugasemdir sem borist höfðu við þau samkomulagsdrög
sem nú liggja fyrir milli SR og Félags landnema um sölu á hluta úr
jörðinni Álftagróf og rekstrarfyrirkomulag Fellsmerkur (drög V). Þau
höfðu verið send á nokkra landnema til umsagnar. Í framhaldi af því
var rætt um það hvernig stjórnin ætti að kynna drögin á
aðalfundinum.
-
Lögbýlið Keldudalur:
Fjallað var um tölvupóst frá Helga (SR) sem varðar þinglýsingu
Keldudals sem lögbýlis, í samræmi við samkomulagsdrögin (sjá lið 2
hér að ofan). Óskar Helgi eftir því að stjórn félags landnema
aðstoði SR við að sækja um lögbýlisréttinn. Ákveðið var að Magnús
setji sig í samband við Helga og sveitarstjórann í Vík varðandi
vinnslu þessa máls.
|
|
|
|
|