TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS) |
|
|
Stjórnarfundur í Félagi
landnema í Fellsmörk haldinn 23.6.2005
(Áttundi fundur stjórnar Fellsmerkur veturinn
2004/2005, haldinn hjá Einari Ragnari)
Mættir: Einar Ragnar Sigurðsson, Kjartan J. Kárason, Magnús Jóhannesson
og Sveinn Björnsson
Fjarverandi stjórnarmenn: Auðunn Oddsson,
Einar Kristjánsson
og Hjalti Elíasson
Helstu atriði úr fundargerð:
- Drög 4
að samkomulagi við SR: Farið var yfir síðustu breytingatillögur á
samkomulagi milli SR og Félags landnema um sölu á hluta úr jörðinni
Álftagróf og rekstrarfyrirkomulag Fellsmerkur (drög IV). Einar Ragnar
skráði niður athugasemdir og orðalagsbreytingar sem hann mun koma á
framfæri við við SR.
-
Aðalfundur félagsins: Fjallað var um tímasetningu aðalfundar
félagsins og hvort nauðsynlegt væri að fresta honum fram í
seinnihluta ágústmánaðar vegna sumarleyfa. Ákveðið var að fresta
ekki fundinum heldur að halda hann fimmtudaginn 7. júlí næstkomandi.
Drög að samkomulagi milli Félags landnema og SR verða á dagskrá
fundarins og send út með fundarboði.
|
|
|
|
|