TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS) |
|
|
Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 7.11.2004
(Fundur stjórnar, haldinn hjá Einari Ragnari
Sigurðssyni)
Mættir: Einar Kristjánsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Kjartan J.
Kárason, Magnús Jóhannesson og Sveinn Björnsson.
Fjarverandi stjórnarmenn: Auðunn Oddsson og Hjalti Elíasson
Helstu atriði úr fundargerð:
-
Niðurstöður
fundar með ráðherra og fundar með SR:
Farið var yfir niðurstöður fundar með landbúnaðarráðherra, Guðna
Ágústssyni, sem haldinn var 3. nóvember s.l. og fundar með Helga Gíslasyni
og Gunnlaugi Claessen hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, sem
haldinn var 5. nóvember 2004. Fram komu eftirfarandi atriði:
-
Skógræktarfélagið
hefur afhent stjórn landnemafélagsins afrit af samkomulagi milli sömu
aðila um málefni Álftagrófar, sem gert var 31. janúar 2003 í
kjölfar yfirvofandi uppboðs
á jörðinni. Einnig hefur stjórnin fengið afrit af ársreikningum
skógræktarfélagsins 2001 og 2003 þar sem m.a. kemur fram hvernig
fjármunum vegna Fellsmerkur hefur verið ráðstafað í stórum dráttum.
-
Að
beiðni Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur landbúnaðarráðuneytið
beðið Ríkiskaup að fresta auglýsingu um sölu á hluta úr jörðinni
Álftagróf til 1. desember næstkomandi. Er þetta gert í kjölfar
bréfaskrifta stjórnar landnemafélagsins til ráðherra og til skógræktarfélagsins.
-
Það
er vilji skógræktarfélagsins að leita samkomulags við landnemafélagið
um viðunandi skilyrði fyrir sölu jarðarhlutans. Vilja
forsvarsmenn skógræktarfélagsins búa eins vel um hnútana fyrir
landnema á Fellsmörk og kostur er.
Ráðgert er að móta samkomulag um þetta með fulltrúum
úr stjórn landnemafélagins og bera það síðan undir almennan félagsfund
í landnemafélaginu síðar í mánuðinum.
-
Með
sölu á 50 ha. hluta úr Álftagróf er ekki ætlunin að selja lögbýlið
Álftagróf. Lögbýlið verður áfram í eigu ríkisins og á því
munu hvíla fyrri skuldir þar til þær eru uppgreiddar.
-
Tillögur
fyrir fund með skógræktarfélaginu: Ræddar
voru mögulegar útfærsluleiðir varðandi sölu jarðarhlutans í Álftagróf
til undirbúnings fundar með skógræktarfélaginu næstkomandi föstudag
(12. november). Kröfur landnemafélagsins voru mótaðar og Einari
Ragnari falið að setja saman lýsingu á þessum atriðum fyrir stjórnina.
|
|
|
|
|