TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS) |
|
|
Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 2.11.2004
(Annar fundur stjórnar, haldinn hjá Hjalta Elíassyni)
Mættir: Auðunn Oddsson, Einar Kristjánsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Hjalti Elíasson,
Kjartan J. Kárason, Magnús Jóhannesson og Sveinn
Björnsson.
Helstu atriði úr fundargerð:
- Undirbúningur
fyrir fund með ráðherra: Fyrir þennan
stjórnarfund hafði erindi verið sent með bréfi til Guðna Ágústssonar
landbúnaðarráðherra (dagsett 20. október 2004). Þar var áhyggjum
félagsmanna lýst yfir sölu á hluta jarðarinnar Álftagrófar og
sjónarmið félagsins kynnt. Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur
fékk afrit af þessu bréfi. Svarbréf (dagsett 28. október 2004)
hafði borist frá Sigurði Þráinssyni fyrir hönd ráðherra.
Einar Ragnar hafði síðan óskað eftir fundi með ráðherra
og var hann á dagskrá daginn eftir (3. nóvember). Stjórnafundurinn
var því helgaður undirbúningi fyrir þann fund.
Farið var yfir alla fyrirliggjandi samninga, sem stjórnarmenn hafa
undir höndum um Fellsmörkina, og dregin fram þau ákvæði sem
fjalla um landnýtingu á svæðinu og réttindi landnema. Ákveðið
var hvernig mál skyldu borin á borð ráðherra.
Á fundinum var hringt í Helga Gíslason
framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur til að bjóða
honum með á fund ráðherra en ekki hafði tekist að ná sambandi
við hann fyrr um daginn. Hann var staddur erlendis og gat ekki komið.
Þá var, að ráði Helga, hringt í Gunnlaug Claessen stjórnarmann
í Skógræktarfélagi Reykjavíkur en hann gat heldur ekki komið.
Einnig lá fyrir að Björgvin Salómonsson kæmist ekki en upphaflega
hafði verið gert ráð fyrir að hann færi með á fundinn. Það
var því ákveðið að þrír stórnarmenn landnemafélagsins færu
á fundinn; Einar Kristjánsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Magnús Jóhannesson.
- Fyrirhugaður
fundur með Skógræktarfélagi Reykjavíkur:
Einar Ragnar lagði fram til skoðunar bréf um þróun mála á
Fellsmörk sem ætlunin var að senda til stjórnarmanna í Skógræktarfélagi
Reykjavíkur. Boðaður er fundur með Helga Gíslasyni framkvæmdastjóra
og Gunnlaugi Claessen stjórnarmanni í skógræktarfélaginu n.k. föstudag
(5. nóvember 2004).
|
|
|
|