TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS) |
|
|
Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 7.01.2003
(fjórði fundur stjórnar veturinn 2002/2003, haldinn hjá Áslaugu).
Mættir: Áslaug Ólafsdóttir, Einar Ragnar Sigurðsson, Elsa G. Vilmundardóttir,
Kjartan Kárason og Sveinn Björnsson.
Helstu atriði úr fundargerð:
-
Samkvæmt
upplýsingum frá Skógræktarfélaginu þá hefur verið fallið frá
uppboði á Álftagróf. Búist er við einhvers konar samkomulagi
milli ráðuneytisins og félagsins síðar í mánuðinum. Það er
hins vegar óbreytt að Þórarinn er á förum frá Álftagróf.
Einar verður áfram í sambandi við Vigni hjá Skógræktarfélaginu
og fylgist með framvindunni.
-
Vignir
hefur í samtali við Einar nefnt áhuga Skógræktarfélagsins á að
breyta aðkomu félagsins að starfinu í Fellsmörk. Hugsanlegt er
að Skógræktarfélagið hafi frumkvæði að viðræðum við
landnema um breytingar á næstunni.
-
Einar
hefur rætt við Vigni um skekkjur í mælipunktum í Fellsmörk.
Fundurinn telur að úr því sem komið er séu landnemar best til
þess fallnir að benda á rétta hornpunkta landa sinna eins og þeir
voru mældir og settir út á sínum tíma. Ákveðið var að beita
sér fyrir viðreisn landamerkjahæla í Fellsmörk og endurmælingu
þeirra í samráði við Skógræktarfélagið.
-
Ákveðið
var taka saman lista yfir fyrirliggjandi verkefni í Fellsmörk á næsta
fundi stjórnar.
|
|
|
|