TIL BAKA
----------------------
SÉRSTAKT EFNI
Erindi Valdimars af
aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs
Fuglalíf á Fellsmörk
Panoramamyndir
----------------------
FLÝTILEIÐIR
Félagatal
Fundargerðir
Vegir og slóðar
Lönd á
Fellsmörk (GPS) |
|
|
Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn
3.12.2002
(þriðji fundur stjórnar veturinn 2002/2003, haldinn hjá Sveini).
Mættir: Einar Ragnar Sigurðsson, Elsa G. Vilmundardóttir, Magnús
Jóhannesson, Kjartan Kárason og Sveinn Björnsson.
Helstu atriði úr fundargerð:
-
Ákveðið
var að birta helstu atriði úr fundargerðum stjórnar á vef
Fellsmerkur.
-
Einar
Ragnar sagði frá því að örnefnaskrár væru komnar á vef
Fellsmerkur. Ákveðið var að safna myndum af svæðinu og tengja
þær með krækjum við þau örnefni sem er að finna í skránum.
Einnig er stefnt að því að setja á vefinn tilvitnanir í fleiri
texta sem snerta Fellsmörk.
-
Einar
Ragnar fór austur í Fellsmörk fyrir 10 dögum og gerði nokkrar
GPS mælingar til samanburðar við mælingar sem Skógræktarfélag
Reykjavíkur lét gera í lok sumars. Hann ræddi í kjölfarið við
mælingamann félagsins og fékk að vita hvernig staðið var að mælingunum.
Í ljósi þeirra upplýsingar sem út úr þessu komu þá telur
stjórnin að í mælingum Skógræktarfélagsins séu skekkjur sem
þurfi að laga áður en hægt er að setja mælipunktana inn í
samninga til þinglýsingar. Ákveðið var að Magnús hefði
samband við Svein Pálsson í Vík vegna þessa máls og að Einar
Ragnar hefði samband við Vigni hjá Skógræktarfélaginu um lagfæringar
á mælipunktunum.
-
Einar og
Magnús hafa fylgst með framvindu uppboðsmálsins á Álftagróf.
Fyrsta uppboð er dagsett þann 5.12.2002 en daginn áður
(4.12.2002) er fyrirhugaður fundur Skógræktarfélagsmanna með
landbúnaðarráðuneytinu um hugsanlega lausn málsins svo ekki þurfi
að koma til uppboðsins. Hafa tilboð gengið á milli þessara aðila
og jafnvel er búist við að lausn fáist á fundinum. Mun Magnús
frétta af niðurstöðu fundarins strax að honum loknum og koma
upplýsingunum til stjórnarmanna í kjölfarið.
|
|